14. september 2011

Saga eftirlifenda kennd í framhaldsskóla

Það frábæra átti sér stað í síðustu viku, að heill árgangur nemenda (207 talsins) við Menntaskólann við Sund nældi sér í eintök af Sögu eftirlifenda – Heði og Baldri. Bókin verður kennd þar í ÍSL 203 samhliða norrænu goðafræðinni. Pöntunin krafðist endurprentunar því aðeins 100 eintök voru eftir af fyrstu prentun. Ég er þar af leiðandi ansi sáttur og ánægður þessa dagana, og vona að þau hafi gaman að lestrinum. Þetta er mjög hvetjandi og hjálpar til við skrifin á öðru bindinu, Heljarþröm.

Ég planlegg að fara til Gautaborgar þarnæstu helgi á árlegu bókamessuna. Vonandi kemur eitthvað gott út úr því. Og svo sló ég til og pantaði flug til og ódýra gistingu í Frankfurt í október; ég ætla sem sagt að fara á bókamessuna þar, sem er sú stærsta í heimi, en Ísland verður heiðursgesturinn í ár. Hér er hlekkur á viðtal á heimasíðu Sagenhaftes Island, en svo heitir verkefnið sem snýr að því að kynna íslenskar bókmenntir á bókamessunni.

1. september 2011

Rússnesk fantasíusíða og nýr skjár

Á dögunum höfðu stjórnendur rússnesku heimasíðunnar fantlab.ru samband og vildu gera höfundarsíðu um mig og bækurnar. Þetta er heimasíða um fantasíur, vísindaskáldskap og slíkar greinar. Hún er vönduð, stútfull af efni og með fjölda notenda. Hún fékk verðlaun á Eurocon 2011 í Stokkhólmi um daginn. Ég sótti einmitt þá ráðstefnu og lærði margt og mikið um fantasíur í Evrópu, sótti fyrirlestra og pallborðsumræður, kynntist fólki, drakk steam-punk te og þar fram eftir götunum.

Hér er höfundarsíðan: http://www.fantlab.ru/autor16394

Ég er kominn á gott skrið í skrifunum og farinn að afkasta talsverðu hvern dag (ég er núna að skrifa kafla sem heitir „Síðasti drúídinn“). En auðvitað er dagamunur á manni. Ég hef verið að vinna ansi mikið í aukavinnunni sem ég er með hérna í Lundi, sem er helpdesk fyrir tölvukerfið sem nemendur nota, svipað eins og Uglan í HÍ. Þetta eru að meðaltali tíu tímar sem ég vinn á viku, og næ því að halda mér uppi; næ að borga leiguna án þess að eiga núll krónur um hver mánaðarmót. En undanfarið hef ég verið að vinna um tuttugu tíma og ætla því að minnka við mig eftir helgi; vinnslan á sögunni fer að verða þéttari.

Svo gerðist það í síðustu viku að tölvuskjárinn gafst endanlega upp. En samdægurs fékk ég bréf inn um lúguna: endurgreiðsla frá skattinum. Launin mín á síðasta ári voru það lág að ég fékk eiginlega allt sem ég borgaði í skatt endurgreitt. Þannig að ég hoppaði rakleiðis upp í strætó, keypti nýjan tölvuskjá og setti hann upp. Þetta er algjör eðall. Frábær upplausn, ég verð lítið sem ekkert þreyttur í augunum af því að skrifa og hann er það stór að ég get haft tvær tölusettar síður hlið við hlið í Word-inu. Einnig splæsti ég í þetta því skyndilega var haft samband varðandi kaup á rúmlega 200 eintökum af Sögu eftirlifenda – Heði og Baldri. Ég segi betur frá því þegar það er í höfn.

Jebb, farinn að skrifa.

Viðbót:
Ég er þessa stundina að hlusta á þetta á meðan ég drekk kaffibolla númer tvö og fer yfir efnisgreinina sem ég var að skrifa (ég kláraði The Witcher um daginn, og er byrjaður á The Witcher 2: Assassins of Kings, en nota leikinn sem gulrót eftir próduktívan dag):

9. ágúst 2011

Kebab og fleira

Þá er ég kominn aftur til Lundar. Sem er frábært í alla staði. Reyndar fékk ég vægt áfall þegar ég rölti um bæinn um helgina: Eftirlætis kebabstaðnum mínum hefur verið lokað, og í staðinn á að opna hamborgarastað. Ég örvænti þó ekki, því það eru í hið minnsta tveir kebabstaðir eftir á sama svæði. Annar þeirra er skemmtilega subbulegur, við hliðina á pöbbnum/kaffihúsinu Ariman, en hinn er lúga sem tekur ekki við kortum. Kebabið er betra á síðarnefnda staðnum.

Núna er að vippa öllu sem ég skrifaði á Íslandi yfir á borðtölvuna og vinna með textann. Efnið er orðið það mikið að nú fer að skipta frekar miklu máli að geta haft góða yfirsýn. Og bráðum fer að koma að því að ég prenti út ýmis skemu yfir karaktera og atburðarás, og hengi upp á vegg fyrir framan mig. Ég þarf líka að renna aftur í gegnum Höð og Baldur, því smáatriðin eru að hverfa mér úr huga. Það væri slæmt ef ósamræmi yrði á útlitseinkennum eða þvíumlíku. Mig langar ansi mikið að fjárfesta í hvítri töflu, eða „white-board“, og nokkrum tússum. Ég tímdi ekki að kaupa þannig þegar ég skrifaði fyrstu bókina. En ég ætla að tékka hvort hægt sé að fá þetta ódýrt – kannski í IKEA?

Og já, breytingarnar sem ég þurfti að gera um daginn, þetta var ekkert mál. Tók nokkra klukkutíma og svo hélt ég áfram.

Ég færði inn uppfærð og enduryfirlesin textabrot á ensku (kynningarþýðingu), á PDF-formi: Hlekkurinn.

- Emil

28. júlí 2011

Breytingar

Lesendur,

Þar kom að því. Ég sé að ég verð að breyta kafla sem hefur þegar verið skrifaður – upp á samræmi og dýnamík. Sem þýðir að ég hendi út örugglega því sem samsvarar einni og hálfri tölusettri síðu, sem ég síðan skrifa upp á nýtt. Þetta gæti virst frekar pirrandi, sem það er auðvitað að vissu leyti, en þýðir í raun að textinn sé að taka ákveðna stefnu; að atburðarásin sé að þéttast smám saman. Þetta eru sem sagt fyrstu drastísku breytingarnar sem ég geri á bók tvö, og alls ekki þær síðustu. Breytingar og lagfæringar eru, jú, mikilvægur hluti af ferlinu.

- Emil